La primavera - marshallhúsið

Veislan

Að lokinni athöfn verður haldið í veislu á veitingastaðnum La Primavera í Marshallhúsinu, þar sem við fögnum saman inn í kvöldið.

Við komu verður gestum boðið upp á léttar veitingar, canapé og freyðivín, á meðan beðið er eftir að brúðhjónin ljúki myndatökum.

Boðið verður upp á glæsilegan kvöldverð matreiddan af meistarakokknum sjálfum, Leifi Kolbeinssyni, þar sem áhersla er lögð á vandað hráefni og einstaka matarupplifun.

Eftir kvöldverð tekur við létt og skemmtileg dagskrá sem þróast svo yfir í dans og gleði – partý fram á nótt. Við hlökkum til að njóta kvöldsins með ykkur, borða vel, skála og dansa saman langt fram eftir!

MATSEÐILL

FORRÉTTIR Í FJÖLSKYLDUSTÍL

Burrata með tómatsultu, furuhnetum, þurrkuðum vínberjum, basil og pangrattó

Parmaskinka vafin utan um bakaðan aspas með smjörsósu

Sterkkrydduð fiskisúpa (enginn skelfiskur)

Grillað gem-salat með parmesansósu og parmesan

MILLIRÉTTUR

Risotto primavera

AÐALRÉTTUR

Kálfur piccata með kartöfluköku og stökku grænkáli

EFTIRRÉTTUR

Döðlukaka með vanilluís og toffeesósu